Thursday, August 9, 2007

Onigiri og hrísgrjónin góðu

Einn mikilvægasti hluti af bento eru hrísgrjón. Stundum eru þau eintóm, stundum í réttum en mín 
uppáhalds leið til að tilbúa hrísgrjón er að búa til onigiri!

Í stuttu máli er onigiri hrísgrjón sem eru þjöppuð saman í eitthvernvegin form, oftast þríhyrning.
Það er gott að kaupa sushi hrísgrjón ef það er í boði en ef ekki verður maður að finna hrísgrjón sem
festast vel saman.
Onigiri inniheldur oft fyllingu. Algengustu fyllingarnar er fiskur en það er hægt að setja allt mögulegt inní þetta!


(myndina fékk ég á http://www.airandangels.com/bentobox/onigiri.html)

No comments: